Endursýning - skapandi smiðjur fyrir börn í Góða hirðinum

5. sep
laugardagur 5.september kl. 10:00 sunnudagur 6.september kl. 10:00

Einungis ein regla: allt er endurunnnið!

Skapandi vinnusmiðjur fyrir börn á aldrinum 8 - 12 ára í Kassanum í Góða hirðinum, þar sem unnið er með aðferðir sviðslistanna. Það er einungis ein regla, allur efniviður smiðjunnar, allt frá sögum til leikmyndar, þarf að vera endurunninn. Undir leiðsögn listrænna stjórnenda verður unnið með valdar þjóðsögur til að endursegja og sviðsetja. Farið verður í spunaleiki og unnið með efnivið beint úr hringrásarhagkerfi Góða hirðisins í sambland við töfratækni leikhússins á borð við ljós og reykvélar. Sófaborð breytist kannski í hund, sængurver í hús og með lýsingu breytist samansafn smáhluta e.t.v.  í risastórt skrímsli. 

Tvær smiðjur verða í boði. Annars vegar laugardaginn 5. september frá kl. 10:00 - 12:30 og hinsvegar sunnudaginn 6. september frá kl. 10:00 - 12:30.
Aðgangur að smiðjunum er ókeypis en einungis 15 pláss eru í boði báða dagana og nauðsynlegt að skrá sig. 

Leiðbeinendur smiðjunnar eru Brynja Björnsdóttir, sviðsmyndahönnuður, Aðalbjörg Árnadóttur, leikkona og sviðshöfundur, og Ragnheiður Maísól Sturludóttir, listakona og framleiðandi. Smiðjurnar eru í samstarfi við Góða hirðinn og unnar með styrk frá Borgarsjóði og Barnamenningarsjóði.

Skráning fyrir laugardaginn 5. september má finna hér: https://form.jotform.com/262393755812060

Skráning fyrir sunnudaginn 6. september má finna hér: https://form.jotform.com/262393434614357

Fleiri viðburðir