Jólapeysu smiðja með Ýrúrarí 21. og 22. nóvember

Gerðu jólapeysuna þína einstaka!
Fjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.
Smiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.
Við mælum með að þátttakendur komi með gamla peysu af sér til að vinna með í smiðjunni, en einnig verða peysur á staðnum úr fataflokkun Góða hirðisins ásamt jólaskrauti sem hægt verður að vinna með á peysurnar.
Í smiðjunni verður einnig í boði ýmis textíl- efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efni og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.
Ætlast er til að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðins.
Þátttaka er ókeypis en það er takmarkað pláss og skráning nauðsynleg.
Fjórar smiðjur verða í boði, tvær hvorn daginn.
21. nóvember kl 12:00 til 13:30 og 14:00 til 15:30
22.nóvember kl 12:00 til 13:30 og 14:00 til 15:30.
Skapandi fataviðgerðarsmiðja Ýrúrarí hefur ferðast víða, og hefur t.f farið fram í Tívolí í Kaupmannahöfn, Textile Art Center í New York, á Helsinki fashion week og á MAK safnið í Vín. Þátttakendum er því einnig frjálst að vinna fataviðgerðir sem eru ekki í jólaþema og virka allan ársins hring en stuðst er við svipaðar aðferðir á jólapeysusmiðjunni. Smiðjuna þróaði textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir (Ýrúrarí) á Hönnunarsafni Íslands í lokaverkefni sínu í listkennsludeild LHÍ, þar sem markmiðið var að móta aðgengilega fataviðgerðarsmiðju þar sem skapandi hugsun og flæði ræður för. Ýrúrarí er þekkt fyrir endruvinnsluverkefni sín með notaðar ósöluhæfar peysur sem hún glæðir nýju lífi og persónuleika með fjölbreyttum handverks aðferðum.
Hægt er að skoða verkefni Ýrúrarí á www.yrurari.com
