Skilmálar vefverslunar Góða hirðisins
Nafn fyrirtækis: SORPA bs.
Kennitala: 510588-1189
Heimilisfang: Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Sími: +354 520 2200
Tölvupóstur: netverslun@sorpa.is
Vefur: https://www.godihirdirinn.is
Vörur og verðlagning
Allar vörur í Góða hirðinum eru notaðar og seldar í því ástandi sem þær eru. Hver vara er aðeins til í einu eintaki. Lýsing, ástandsmat og myndir eru birt eftir bestu vitund starfsfólks, og verð miðast við ástand vörunnar.
Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndabrengl. Góði hirðirinn áskilur sér rétt til að fella niður viðskipti ef rangt verð var gefið upp og endurgreiða kaupanda að fullu.
Frátekning við kaup
Þegar kaupandi hefur gengið til greiðslu er varan tekin frá í stutta stund á meðan greiðsla er staðfest. Ljúki greiðslu ekki innan þess tíma losnar varan aftur og getur annar viðskiptavinur keypt hana. Kaup eru bindandi þegar greiðsla hefur verið staðfest og kaupandi fengið staðfestingarpóst.
Greiðslumöguleikar
Við tökum við greiðslu með debet- og kreditkortum. Greiðsla fer fram á öruggri greiðslusíðu Straums hf., sem er vottuð samkvæmt PCI DSS-öryggisstaðli kortafyrirtækjanna.
Kortanúmer eru hvorki vistuð hjá Góða hirðinum né í vefverslunarkerfinu. Kortaupplýsingar fara eingöngu um greiðslusíðu Straums.
Reikningur og innskráning
Kaupandi getur skráð sig inn með netfangi sínu og fær þá innskráningarkóða sendan í tölvupósti. Ekki er þörf á lykilorði. Innskráðir viðskiptavinir sjá pöntunarsögu sína og stöðu pantana.
Persónuvernd
Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndaryfirlýsingu SORPU og persónuverndaryfirlýsingu vefverslunarinnar, í fullu samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679.
Afhending pantana
Vörur eru eingöngu afhentar í verslun Góða hirðisins, Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Ekki er boðið upp á heimsendingu.
Afgreiðsla pantana miðast við 0–2 virka daga frá pöntun. Þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar fær kaupandi tölvupóst með staðfestingu. Vörurnar eru sóttar í lúgu vefverslunar innst í versluninni á opnunartíma. Kaupandi sýnir pöntunarnúmer eða staðfestingarpóst við afhendingu.
Afhendingartími vefverslunar er virka daga kl. 11:00–17:50 og um helgar kl. 11:00–16:50.
Ósóttar pantanir
Pöntun skal sótt innan 21 dags frá því að kaupandi fær tilkynningu um að hún sé tilbúin til afhendingar. Á því tímabili eru sendar allt að þrjár áminningar í tölvupósti. Þriðja áminningin er send 14 dögum eftir tilkynninguna og veitir 7 daga viðbótarfrest.
Sé pöntun ekki sótt innan frestsins fellur hún niður og varan fer aftur í sölu. Kaupandi á þá ekki rétt á endurgreiðslu.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Samkvæmt reglum um fjarsölu má falla frá kaupum innan 14 daga frá því að varan var tilkynnt tilbúin til afhendingar og fá kaupverðið endurgreitt að fullu.
- Vöru skal skilað í lúgu vefverslunar innst í verslun Góða hirðisins, Köllunarklettsvegi 1, á afhendingartíma vefverslunar.
- Sýna þarf kvittun eða staðfestingarpóst fyrir kaupunum.
- Varan skal vera í sama ástandi og við afhendingu.
- Endurgreitt er inn á sama greiðslukort og notað var við kaupin. Endurgreiðsla getur tekið allt að 10 daga að birtast á reikningi kaupanda.
Komi í ljós að vara hafi skemmst áður en hún var afhent, eða reynist hún ekki í samræmi við lýsingu, lætur Góði hirðirinn kaupanda vita og endurgreiðir kaupverðið.
Að öðru leyti er vísað til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga nr. 16/2016.
Samskipti
Fyrirspurnir um pantanir berast á netverslun@sorpa.is eða í síma 520 2200.
