Styrkveiting 2025

19. desember 2025

Góði hirðirinn veitir 7 milljónir í styrki og opnar nýtt viðburðarrými

Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU, hélt á dögunum árlega styrkveitingu sína þar sem samtals 7 milljónir króna voru gefnar til góðgerðar- og líknarmála. Með þessu bætist við þær rúmar 14 milljónir sem Góði hirðirinn hefur þegar úthlutað á árinu. Síðustu 30 ár hefur Góði hirðirinn veitt samtals 370 milljónir í styrki.

„Þegar fólk velur að versla í Góða hirðinum er það ekki aðeins að gefa hlutum nýtt líf heldur einnig að styrkja góð málefni,“ segir Ruth Einarsdóttir, sviðsstjóri Góða hirðisins.

Allur hagnaður af sölu rennur til góðgerðar- og líknarsamtaka, með áherslu á verkefni sem styðja fólk til sjálfshjálpar, menntunar og endurhæfingar, auk stuðnings við efnaminni börn og ungmenni. Í ár bárust um 70 umsóknir um styrki.

Þau samtök sem hlutu styrki í ár eru:

  • Barnaheill
  • Bergið Headspace
  • Ekki gefast upp!
  • Gleðistjarnan
  • Gló stuðningsfélag
  • Hjálparkokkar
  • Hjálparstarf kirkjunnar
  • Hlein hjúkrunarsambýli
  • Kraftur
  • Lionsklúbburinn Kaldá
  • Matthildur skaðaminnkun
  • Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
  • Píeta samtökin
  • Sjónarhóll
  • Smiðjan Harpan
  • Stígamót
  • W.O.M.E.N á Íslandi

Viðburðurinn í ár markaði einnig formlega opnun Kassans, nýs viðburðarrýmis Góða hirðisins. Kassinn verður vettvangur fyrir vinnustofur, sýningar, viðgerðarstundir, pop-up markaði og skapandi verkefni sem tengjast hringrásarhagkerfinu.

„Við hlökkum til að þróa Kassann áfram með samstarfsaðilum okkar og öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í því að efla hringrásina með okkur,“ segir Ruth.