Sérvalin, vel með farin og flott föt.
Þann 11. mars síðastliðinn opnuðum við glæsilegt og skemmtilegt fatahorn í Góða hirðinum. Þar má finna sérvalin, vel með farin föt, skó og fylgihluti – sannkallað crème de la crème af því sem berst til okkar. Í fatahorninu má finna allt frá vintage kjólum til hljómsveitabola, og eins og með aðrar vörur í versluninni bætast nýjir fjársjóðir við á hverjum degi.
Við höfum undanfarið verið að taka á móti um 2 tonnum af fatnaði í hverri viku og á næstunni stefnum við á að auka það í 3 tonn. Þetta þýðir meira úrval fyrir alla sem elska að finna einstakar flíkur og fleiri flíkur í endurnot.
Fatapokamarkaðurinn heldur svo ótrauður áfram og þar geturðu fyllt poka af fötum fyrir aðeins 5.000 kr!
Nýr textílgámur í Góða
Nú höfum við komið fyrir sérstökum textílgámi í versluninni okkar þar sem hægt er að skila notuðum fatnaði. Gámurinn er staðsettur við innganginn beint á móti afgreiðslukössunum. Þar er hægt að koma með vel með farin föt og gefið þeim framhaldslíf!
Hringrás í framkvæmd 💚
Fatahornið er ekki bara fullt af flottum flíkum, heldur var allt efni til að útbúa hornið úr Góða hirðinum sjálfum. Það má því með sanni segja að hornið sé hringrás eins og hún gerist best ♻️
Komdu og kíktu!
Fatahornið okkar er staðsett fremst í búðinni, við innganginn, og er opið á sama tíma og verslunin sjálf.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur 💚