24.10.2026
Halloween búningasmiðja með Þykjó

Hræðilega skemmtileg búningasmiðja í Góða hirðinum
Það var líf og fjör í Góða hirðinum þegar hönnunarteymið Þykjó hélt Halloween búningasmiðju fyrir krakka. Fjöldi barna mætti og aðstaðan fylltist fljótt af nornum, draugum, skrímslum og alls konar furðuverum í mótun.
Allir búningarnir voru gerðir úr notuðu efni sem fannst í Góða hirðinum. Gamlar flíkur, efnisbútar, gardínur og ýmsir smáhlutir fengu þar nýtt hlutverk í höndum krakkanna, sem fengu að klippa, líma, sauma og skreyta eftir eigin höfði. Sköpunargleðin naut sín til fulls og útkoman var hver búningurinn öðrum flottari.
Smiðjan sýndi vel að búningar þurfa ekki að vera nýir eða keyptir tilbúnir til að vera frábærir. Með smá hugmyndaflugi og því sem til er má búa til eitthvað alveg einstakt, og um leið gefa hlutum sem annars hefðu endað ónotaðir nýtt líf.
Við þökkum Þykjó kærlega fyrir frábært samstarf og öllum sem mættu fyrir komuna. Það var sannarlega gaman að sjá ykkur!




