Við höldum upp á 30 ára afmæli Góða hirðisins
30 ár af öllu á milli himins og jarðar
Árið 1994 opnaði Góði hirðirinn dyr sínar í fyrsta sinn og hóf þar með vegferð sína. Í dag er Góði hirðirinn orðinn ómissandi hluti af hringrásarhagkerfi landsins og er hvergi hættur.
Í 30 ár höfum við tekið á móti öllu á milli himins og jarðar, frá vintage skartgripum og húsgögnum yfir í leikföng, bækur og raftæki - og reynt okkar besta til að gefa þeim nýtt líf.
Markmið okkar hefur alltaf verið einfalt, að lengja líftíma hluta og minnka sóun. Með því að endurnýta í stað þess að henda erum við öll að leggja okkar af mörkum til sjálfbærrar framtíðar. Góði hirðirinn er rekinn af SORPU og rennur allur ágóði af starfseminni til góðgerðamála, þannig má segja að gamlir hlutir verði að góðum verkum.
Sérstaklega viljum við þakka samstarfsaðilum okkar á endurvinnslustöðum SORPU, án þeirra væri þetta risastóra verkefni ekki mögulegt. Þeirra framlag í móttöku og flokkun gefur Góða hirðinum líf og sess innan stærra vistkerfis!
Við fögnum þessum merka áfanga með djúpu þakklæti til allra sem hafa stutt við okkur í gegnum árin. Þið sem gefið hlutina ykkar til framhaldlífs og viðskiptavinir sem gera starfsemina lifandi og skemmtilega.
Starfsfólk Góða hirðisins er fjölbreyttur og töfrandi hópur einstaklinga sem bera allir sína sérþekkingu á borð. Fjölbreytileikinn er styrkurinn sem við byggjum allt okkar starf á og nýtum krafta okkar til að vera jákvætt afl í samfélaginu.
Takk fyrir samfylgdina – áfram saman inn í næstu 30 ár!